Joðófórhreinsir

Glyserin Joðófór

Notaðar eru eingöngu endurvinnanlegar umbúðir undir vöruna.

Eiginleikar: GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR er alhliða gerildeyðandi efni til notkunar og hreinsunar í matvælaiðnaði. Til þvotta og sótthreinsunar á áhöldum notuðum í þeim iðnaði.

Notkun: Blandið 30 ml (3 tappafyllingar) í 10 l af vatni, en þetta samsvarar 60 ppm joðstyrk í lausninni. Þvoið áhöld og þurrkið með hreinum klút/pappírsþurrku áður.

Tæringarhætta: GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR getur tært ál (og aðra mjúka málma).

Meðhöndlun: Sýnið aðgæslu og notið öryggishlífar (sbr. öryggisleiðbeiningar).

Geymsla: GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR geymist í a.m.k. tvö ár frá framleiðsludegi sé hann í upprunalegu umbúðunum, lokuðum og við 5-20°C.

Eðlis- og efnafræðilegir eiginleikar við 20°C: Ástand og útlit: Raubrúnn vökvi.. pH: ~1, en ~4 í 0,3% notkunarlausn. Eðlisþyngd: 1060 ± 10 kg/m3.

Upplýsingar um innihald: Vatn, ójónísk yfirborðsvirk efni, glýsról, sorbitól, fosfórsýra og joð.

Varnaðarmerki: Ekkert.

Hættumerking: Engin.

Varúðarmerking: Geymist þar sem börn ná ekki til.

2.190
AM34

Ekki til á lager

 
Prentvæn útgáfa