Notaðar eru eingöngu endurvinnanlegar umbúðir undir vöruna.
Eiginleikar:
GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR er alhliða gerildeyðandi efnictil notkunar í handdýfur í matvælaiðnaði. Til þvotta á júgri og spenahylkjum mjaltavéla. GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR hefur mýkjandi og græðandi áhrif á hörund, ásamt gerildeyðandi áhrifum og er því áhrifaríkt gegn hvers konar bólgum og ígerð í húð. Regluleg notkun GLÝSERÍN-JOÐÓFÓRS og MJALLAR FRIGGJAR JÚGURÞVOTTALÖGS til skiptis, varnar útbreiðslu júgurbólgu.
Notkun:
ÞVOTTUR Á JÚGRI OG SPENAHYLKJUM: Blandið 30 ml (3 tappafyllingar) í 10 l af vatni, en þetta samsvarar 60 ppm joðstyrk í lausninni. Þvoið spena fyrir mjaltir og þurrkið hvert júgur með sérstökum klút/pappírsþurrku. Spenahylki ættu að fá að liggja í a.m.k 30 sekúndur í þessari fyrir mjaltir á hverri kú. SPENADÝFA: Strax eftir mjaltir er spenum dýft í joðofórlausn, sem inniheldur einn hluta af GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR móti þremur hlutum vatns. Styrkleiki lausnarinnar er 5.000 ppm joð. HANDDÝFA: Blandið 30 ml (3 tappafyllingar) í 10 l af vatni, en þetta samsvarar 60 ppm joðstyrk í lausninni. Höndum er dýft í joðlausnina eftir venjulegan handþvott.
ATH: Nauðsynlegt er að nota GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR og JÚGURÞVOTTALÖG til skiptis til að koma í veg fyrir ónæmi baktería. Athugið að lausn af GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR er virk á meðan gulbrúni liturinn helst á henni. Hverfi hann er lausnin óvirk.
Tæringarhætta:
GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR getur tært ál (og aðra mjúka málma).
Meðhöndlun:
Sýnið aðgæslu og notið öryggishlífar (sbr. öryggisleiðbeiningar).
Geymsla:
GLÝSERÍN-JOÐÓFÓR geymist í a.m.k. tvö ár frá framleiðsludegi sé hann í upprunalegu umbúðunum, lokuðum og við 5-20°C.
Eðlis- og efnafræðilegir eiginleikar við 20°C:
Ástand og útlit: Raubrúnn vökvi..
pH: ~1, en ~4 í 0,3% notkunarlausn.
Eðlisþyngd: 1060 ± 10 kg/m3.
Upplýsingar um innihald:
Vatn, ójónísk yfirborðsvirk efni, glýsról, sorbitól, fosfórsýra og joð.
Varnaðarmerki:
Ekkert.
Hættumerking:
Engin.
Varúðarmerking:
Geymist þar sem börn ná ekki til.