European Select 7,5L
Vinsamlega lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en hafist er handa við víngerðina. Ef poki merktur F-pack er í pakkanum fer hann í lögunina í þrepi 3 lið 2. Hreinsið öll áhöld og ílát vel með IP 5 klórhreinsi og skolið vel á eftir með köldu vatni. Til þess að lögunin verði u.þ.b.18 - 23°C er best að sjóða 3-4 lítra af vatni(þrep 1, liður 1) á móti kalda vatninu(þrep 1, liður 2 & 3) og efninu(þrep 1, liður 2), miðað við 23 lítra lögun.
Þrep 1 – Fyrri gerjun
- Leysið upp innihald poka merktan „Bentonite“ í vatni með því að láta 3-4 lítra af soðnu vatni í vel hreinsað gerjunarílátið. Sáldrið innihaldinu varlega út í vatnið og hrærið vel, reynið að varast að efnið fari í köggla. Ef það fylgir með víngerðarefninu Eikarpoki(ar) eða Elderflowerspoki(ar) þá hellið innihald þeirra í út í gerjunarílátið eftir að „Bentonite“ hefur verið leyst upp og hrærið vel.
- Setjið nú innihald glæra pokans(þrúguefnið) út í og hreinsið pokann að innan með 3-5 lítum af köldu vatni og hellið í gerjunarílátið.
-
- Setjið nú kalt vatn í gerjunarílátið þannig að lögunin verði 23 lítrar.
- Mælið með sykurflotvoginni. Flotvogin ætti að sýna u.þ.b. 1080(80) til 1090(90).
-
- Verið viss um að hitinn í löguninni sé u.þ.b. 18-24°C og sáldrið gerinu yfir og út í lögunina. (Ath. gerið/yeast getur verið í bleikum/bláum/gráum eða hvítum poka).
- Lokið nú gerjunarílátinu og látið vatnslásinn á. Komið ílátinu fyrir á góðum stað þar sem herbergishitinn er u.þ.b. 18-24°C. Gerjun ætti að hefjast innan 1-2 sólahringa.
- Það er mjög gott að sykurmæla og mæla hitann daglega og skrá það hjá sér því gerjunin gengur misjafnlega.
Þrep 2 – Seinni gerjun
Þegar sykurflotvoginn hefur náð 1010(10) eða minna, á 3 til 7 degi, þá er lögunin tilbúin til fleytingar. Athugið, því lægri herbergishiti því lengri gerjun.
- Fleytið löguninni varlega yfir í annað gerjunarílát (helst 23 lítra glerkút) og skiljið botnfallið eftir(fyrir glerkút, ekki fylla hann upp í topp).
- Munið að hafa alltaf vatn í vatnslásnum og hafa hann á gerjunarílátinu nema þegar þið eruð að vinna við það.
- Hafið gerjunarílátið áfram í gerjunarhita(18-24°C) í u.þ.b. 7 til 12 daga til að klára gerjun. Það þarf ekkert að eiga við lögunina á þessum tíma. Á þessum tíma er gott að sykurmæla annan hvern dag.
Þrep 3 – Stoppa gerjun
Eftir 7-10 daga á að sykurmæla vínið. Mælirinn ætti að sýna 996(-4) eða minna, ef ekki látið þá vínið standa í 2-4 dögum lengur og mælið aftur. Áður en haldið er áfram þarf vínið að vera sem næst þessu marki.
- Leysið upp innihald poka merktum „Potassium Metabisulphide“ með því að hella því út í lögunina og hræra vel í 1-2 mínútur. Hellið síðan innihaldi poka merktum „Potassium Sorbate“ með því að hella því út í lögunina og hræra vel í 2-3 mínútur.
- Ef það fylgir poki merktur “F” með víngerðarefninu. (Fyrir glerkút þá takið 500 ml úr kútnum og geymið til að fylla upp í hann í lið 5 hér á eftir). Hristið pokann, takið tappan af og hellið í gerjunarílátið. Hrærið mjög vel. Mælið með sykurflotvoginni og nú ætti hún að sýna 998(-2) til 1007(7) eftir tegundum.
- Hristið vel 2-3 á dag í einn til tvo daga, eða þangað til öll kolsýra er farin úr löguninni. Ef hrært er með vél, þar til gerðri hræru, skal hræra á miðlungs hraða í 5 mínútur.
- Hristið poka merktum „Chitosan“ eða „Ichtyocolle“(Isinglass/Isokleer), klippið hornið af pokanum og hellið út í gerjunarílátið og hrærið vel í 2-3 mínútur.Látið nú lögunina falla og ”tæra sig” í u.þ.b. 7-14 daga. Munið að athuga að vatnið sé nóg í vatnslásnum.
- Bara fyrir glerkúta. Setjið nú vínið sem þið geymduð út í glerkútinn þangað til það eru u.þ.b. 5-10 cm upp í hálsinn á glerkútnum. Athugið að það sé nóg vatn í vatnslásnum og gúmmitappinn vel fastur. Látið standa og falla í u.þ.b. 7-14 daga.
Þrep 4 – Felling og átöppun
Eftir 7-14 daga ætti lögunin að vera nokkuð vel fallin en það er mjög gott að fleyta víninu á þessu stigi. Ef sía á vínið á að bíða í u.þ.b. 2 vikur í viðbót og sía það síðan.
- Fleytið víninu varlega í vel sótthreinsað gerjunarílát(helst glerkút). Látið falla í 2 vikur og þá ætti vínið að vera tært.
- Eftir þessar 2 vikur takið þá sýnishorn í glas og fullvissið ykkur um að vínið sé tært með að bera glasið upp að sterku ljósi og sjá hvort það er ský í því ennþá. Ef ykkur finnst það ekki tært þá bíðið viku í viðbót eða hafið samband við næsta söluaðila Ámunnar og fáum upplýsingar um síun eða fellingu. Vinsamlegast athugið til þess að þyrla ekki upp botnfallinu í gerjunarílátinu þegar fleytt er á flöskur er mjög gott að fleyta víninu yfir á annað gerjunarílát til að hafa ílátið botnfallslaust og setja það svo beint yfir á flöskur.
Ef geyma skal vínið í 6 mánuði eða lengur er mjög gott að bæta við 1 teskeið af potassium metabisulphide í þrepi 3. Vínið mun batna verulega við geymslu á flösku næstu 6-12 mánuði. Bleytið ekki korktappana áður en þeir eru settir í flöskurnar og bíðið með að leggja þær á hliðina í 2 daga þannig að korkurinn fái að jafna sig og túttna út í flöskustútnum en þá ætti ekki að leka úr flöskunni.